Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Þjónusta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Eftirfarandi eru upplýsingar um þá þjónustu sem veitt er í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. 

Fatageymsla
Upplýsingamiðstöð á hlaupdegi verður í Menntaskólanum í Reykjavík (MR). Þar geta keppendur komið fatnaði og öðru dóti fyrir í geymslu. Starfsmenn vakta geymsluna en þó er engin ábyrgð tekin á fjármunum sem þar eru geymdir.


Óskilamunir
Farið verður með alla óskilamuni í upplýsingamiðstöðina í MR á hlaupdegi. Eftir hlaupið verður hægt að nálgast óskilamuni á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons á Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Símanúmerið á skrifstofunni er 535 3700.


Sjúkragæsla
Læknar og hjúkrunarlið er til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar þegar hlauparar koma í mark. Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík veita aðstoð á hlaupaleiðinni.


Salerni
Færanleg salerni eru aðgengileg eftir 5km, 12km, 18km, 25km, 30km og 35km. Einnig eru færanleg salerni á bílastæði við MR í Lækjargötu.


Drykkjarstöðvar
Á um það bil fimm kílómetra fresti kemur þú að drykkjarstöð. Þar er boðið upp á Powerade íþróttadrykk og vatn. Keppendum í maraþoni er einnig boðið upp á banana á drykkjarstöðvum á seinni helming leiðarinnar. Í Lækjargötu, við endamarkið, er einnig drykkjarstöð fyrir allar vegalengdir. Smellið hér til að skoða staðsetningar drykkjarstöðva á leiðinni.


Hlaupaleiðin
Gul strik og merki með örvum vísa keppendum leiðina. Fjöldi hlaupinna kílómetra má sjá reglulega á skiltum eða appelsínugulum keilum. Því miður er leiðin ekki algerlega lokuð fyrir akandi umferð og því eru hlauparar beðnir að fara varlega. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum.

 
Borði
Borði
Borði