|
Sjálfvirk tímataka er í 10 km, hálfu maraþoni, maraþoni og boðhlaupi.
Tímatakan fer fram með tölvutækni, meðal annars litlum plastkubb sem kallaður er ”flaga” (á stærð við 10 kr pening) sem hver og einn þátttakandi fær afhenta með keppnisnúmeri.
Eins og áður verður notaður tímatökubúnaður frá ChampionChip. Hann samanstendur af mottum í rásmarki sem hlauparar fara yfir í byrjun og enda hlaups og flögu sem hver og einn hlaupari verður að festa við annan skóinn.
Án flögu fæst enginn tími og flagan virkar eingöngu sé hún fest á skó. Flagan geymir númer sem tengt er viðkomandi hlaupara og tímatakan hefst þegar farið er yfir motturnar í byrjun hlaups og lýkur þegar hlaupari kemst í mark.
Flögutími gefur því nákvæman persónulegan árangur hlaupara, óháð hve aftarlega í hópnum hann var við ræsingu. Einnig er tekinn tími frá því að startskot ríður af, sem kallast byssutími en það er sá tími sem gildir í keppninni og úrslit í einstökum flokkum eru ákvörðuð út frá honum. Þessi tækni gefur færi á að skrá millitíma hjá keppendum á völdum stöðum á leiðinni.
Í maraþoni og boðhlaupi eru eftirfarandi millitímar skráðir: 10 km, 20 km, 21,1 km, 30 km og 37,2 km. Í hálfumaraþoni er skráður millitími við 10 km. Smellið hér til að fylgjast með millitímum hlaupara. Athugið að um er að ræða óstaðfest úrslit sem eingöngu eru virk á hlaupdag á meðan hlaupið fer fram. Millitímarnir eru einnig notaðir til að sýna skemmtilega myndræna framsetningu á úrslitum sem má finna hér.
Mikilvægt er að skila tímatökuflögunni þegar komið er í mark til starfsmanna hlaupsins. Athugið að tímatökuflagan gildir eingöngu í þetta ákveðna hlaup og hefur hver þátttakandi hana til leigu. Flagan hefur verið skráð á nafn þátttakanda og getur hann fengið bakreikning ef flögu er ekki skilað til starfsmanna.
Þau sem eiga eigin flögu og vilja nota hana geta það. Þau geta haft samband við upplýsingaborð á skráningarhátíð föstudaginn 17.ágúst, þar sem verður að endurskrá “eigin flögu” á keppenda.
 Flögur fastar í skóreimum

Skilti sem vísa á starfsmenn sem taka á móti flögum
|