Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Almennar upplýsingar
Miðlar
Kort
Úrslit
Laugavegurinn 2011
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Reglur og flokkaskipting Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 06. janúar 2009 11:18

Reglur hlaupsins hafa verið settar saman út frá þeirri reynslu sem við höfum öðlast undanfarin ár

  • Allir hlauparar fari eftir tilmælum um fatnað og hafi meðferðis viðeigandi fatnað.
  • Allir hlauparar þurfa að hafa númer sýnilegt til þess að auðvelda og flýta skráningu og til að starfsmenn viti hverja á að þjónusta.
  • Allir hlauparar eiga að skrá sig hjá hlaupstjóra í Landmannlaugum fyrir hlaup. Þeir sem ekki gera það verða afskráðir sem þátttakendur í hlaupinu.
  • Óheimilt er með öllu að kasta frá sér rusli á leiðinni. Hlaupurum er skilt að bera mittispoka sem fylgir með skráningargögnum í hlaupinu fyrir rusl. Hafa ber í huga að hlaupið er í gegnum friðland að fjallabaki.


Mikilvægi  þess að virða skráningu:

  • Til þess að ganga úr skugga um að allir þátttakendur skili sér yfir hálendið á fyrsta legg frá Landmannlaugum í Hrafntinnusker er mikilvægt að  allir gefi sig fram við  skráningastjóra í Álftavatni.
  • Þau sem hætta í hlaupinu á leiðinni verða að gefa sig fram við starfsmann hlaupsins og afhenda honum númerið sitt.
  • Ef einhvern þátttakenda vantar á þátttökulista í Álftavatni eða við lok hlaupsins er hann álitinn týndur. Viðbrögð við því er útkall björgunarsveita en þessu viljum komast hjá ef við eigum þess kost.
  • Allir þátttakendur þurfa að virða tímareglur við fjórar klukkustundir í Álftavatni og sex klukkustunda mörk í Emstrum.
  • Reykjavíkurmaraþon, sem er framkvæmdaraðili hlaupsins, áskilur sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrri þátttakendur og starfsmenn. Í þau þrettán ár sem þetta maraþon hefur verið haldið hefur þó aldrei til þess komið að þurft hafi að aflýsa.

Aldursflokkar

Karlar: 18-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.
Konur: 18-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.

Flokkaskipting

Boðið er upp á þriggja manna sveitakeppni sem hægt er að mynda óháð kyni og aldri. Keppt er um minnstan samanlagðan tíma. Skrá má fimm manns en tímar þriggja fyrstu í mark gilda. Skráning í sveitir fer fram um leið og afhending gagna þann 15.-16. júlí.

 

Greiðsluskilmálar og almennir skilmálar

Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.