Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Latabæjarhlaupið 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Athugið að neðangreindar upplýsingar eiga við um latabæjarhlaupið 2011. Upplýsingar um Latabæjarhlaupið 2012 verða aðgengilegar hér á marathon.is þegar nær dregur sumri.


------------------------------------------------

Latabæjarhlaupið er ætlað börnum 8 ára og yngri en foreldrar og forráðamenn geta hlaupið með börnunum. Hlaupið fer fram í Hljómskálagarðinum laugardaginn 20.ágúst 2011.


Forskráningu á netinu er lokið. Hægt verður að skrá börn til þátttöku á skráningarhátíð í Laugardalshöll föstudaginn 19.ágúst kl.10:00-19:00. Einnig verður hægt að skrá börnin í tjaldi sem staðsett er í suðurenda Hljómskálagarðar frá kl.12:00 á hlaupdag 20.ágúst.



Aldursskipting

Hlaupinu er skipt í þrjá aldurshópa:


GRÆNA
 leiðin er fyrir þriggja ára og yngri - barnið hleypur 700 metra

GULA leiðin er fyrir fjögurra og fimm ára börn - barnið hleypur 700 metra

BLÁA leiðin er fyrir sex til átta ára - barnið hleypur 1,5 km


Allir sem eru með kerrur og vagna meðferðis skulu fara aftast. Æskilegt er að einn fullorðinn fylgi hverju barni 6 ára og yngri. Systkini geta hlaupið saman en þá verða þau eldri að hlaupa í flokki þeirra yngri. Þetta er gert til að auðvelda framkvæmdina á sjálfu hlaupinu þannig að börnin hafi meira svigrúm til að hlaupa.


Þátttökugjald

Þátttökugjald er 1.000 kr ef skráð er á netinu fyrir kl.16:00 miðvikudaginn 17.ágúst. Á skráningarhátíð í Laugardalshöll föstudaginn 19.ágúst hækkar þátttökugjaldið í 1.500 kr.

Innifalið í þátttökugjaldinu er m.a. Latabæjarbolur sem verður afhentur með skráningargögnum föstudaginn 19.ágúst milli 10 og 19 í Laugardalshöll.

Öll börn fá spjald með skráningargögnum til að festa framan á bolinn sinn með nælum. Litur spjaldsins segir til um hvaða leið barnið hleypur (fer eftir aldri). Börnin geta skrifað nafnið sitt, uppáhaldsnúmerið eða teiknað mynd á spjaldið.

Allir þátttakendur verða að klæðast Latabæjarbol til að fá verðlaunapening að hlaupi loknu. Foreldrar sem fylgja börnum í Latabæjarhlaupinu eru ekki skráðir og þurfa ekki að greiða þátttökugjald.

Veittur er fjölskylduafsláttur ef foreldri/forráðamaður hleypur í Reykjavíkurmaraþoni og tvö eða fleiri börn. Sjá nánar í verðskrá Reykjavíkurmaraþons.


Skráningarhátíð

Föstudaginn 19.ágúst verður skráningarhátið Latabæjarhlaupsins í Laugardalshöll. Á skráningarhátíðinni geta forskráðir þátttakendur nálgast skráningargögn sín og þeir sem eiga eftir að skrá sig geta einnig gert það á staðnum. Skráningarhátíðin er frá kl. 10-19.


Hlaupið

Öll hlaup verða ræst í Sóleyjargötu, austan Hljómskálagarðs og enda öll í Bjarkargötu sem er vestan garðsins.

Í Sóleyjargötu verða afmörkuð svæði fyrir hvern ráshóp. Vinsamlega hlýðið fyrirmælum starfsmanna um hvar þið getið komið ykkur fyrir.

Í endamarki verður mikill fjöldi. Því er mikilvægt að forráðamenn sem ekki hlaupa með, bíði við enda marksvæðis en fari ekki inn á svæðið sjálft. Vinsamlega geymið myndatöku þar til komið er útaf marksvæðinu.


Fjölmenni

Tæplega 4000 börn og fylgdarfólk þeirra tóku þátt í Latabæjarhlaupinu 2010. Gera má því ráð fyrir að á bilinu 8-12 þúsund manns séu á svæðinu á meðan hlaupið fer fram.

Til að fyrirbyggja að börn og foreldrar verði viðskila í þessu mikla fjölmenni eru foreldrar beðnir að merkja armband barna sinna (sem allir þátttakendur fá úthlutað með skráningargögnum) og ákveða með þeim stefnumótastað. Í upplýsingatjaldi nálægt sviði verður hægt að leita barna sem hafa orðið viðskila við sitt fólk.

Bílastæði eru við Háskóla Íslands og þaðan er auðvelt að komast yfir í Hljómskálagarðinn á göngubrú við Njarðargötu. Svo er líka tilvalið að taka strætó.


Dagskrá

Upphitun við rásmark 5 mínútum fyrir hvert hlaup


kl.13:30 – Blá leið (6 til 8 ára) – ræst í 1,5 km hlaup

kl.13:45 – Gul leið (4 og 5 ára) – ræst í 700 m hlaup

kl.14:00 – Græn leið (0-3 ára) – ræst í 700 m hlaup

kl.14:00-14:20 – Tónlist á sviðinu

kl.14:20 – Að loknu hlaupi verður skemmtidagskrá á sviði í suðurenda Hljómskálagarðsins


Smellið á kortið til að skoða stærra


 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði