Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Almennar upplýsingar
Skráning
Reglur
Miðlar
Hlaupaleiðin
Úrslit
Laugavegurinn 2012
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Dagskrá 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Lagt er af stað frá Reykjavík frá Skautahöllinni í  Laugardal kl. 4:30 að morgni hlaupadags og ekið í Landmannalaugar með stuttu stoppi á leiðinni í Þjónustumiðstöðinni Hrauneyjum. Ferðin tekur um þrjár og hálfa klukkustund.


Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 14.júlí 2012 kl. 09:00 og lýkur í Húsadal í Þórsmörk.


Af öryggisástæðum þurfa allir þátttakendur að skrá sig hjá hlaupstjóra við upphaf hlaupsins í Landmannalaugum og við skála FÍ í Álftavatni. Hlaupið er svo ræst í nokkrum hópum með nokkurra mínútna millibili. Litur á þátttökunúmerum segir til um hvaða hópi hver tilheyrir. Þetta er gert vegna þrengsla í upphafi hlaups og til að varna því að tíminn líði án þess að hlauparar komist af stað. Sjá nánar í reglum hlaupsins.
 

Áætluð dagskrá hlaupdags laugardaginn 14.júlí 2012

04:30 Rútur leggja af stað úr Laugardal. Þáttakendum er skipt í rútur eftir hópum og fer rúta með gula hóp fyrst af stað, þá rauða og loks græna.
06:45 Morgunverðarstopp í Hrauneyjum í 30 mínútur
08:30    Áætluð koma í Landmannalaugar


Landmannalaugar skrásetning:
Allir hlauparar þurfa að skrá sig

08:50    Uppröðun í ráshópa
09:00 Gulur hópur ræstur
09:05 Rauður hópur ræstur
09:10 Grænn hópur ræstur


Álftavatn skrásetning:
Allir hlauparar skrá sig að nýju við Álftavatn.

Tímatakmörk við 4 klst við Álftavatn.

Tímatakmörk við 6 klst í Emstruskála.


Húsadalur:

Þau sem fara með rútu til Reykjavík þurfa að ná í miða í „upplýsingum“ í aðalhúsi.

13:30    Fyrsti karlhlaupari væntanlegur
14:30 Fyrsti kvenhlaupari væntanlegur
17:30 Verðlaunaafhending
18:00 Áætlað að fyrsta rúta fari af stað  
20:00 Áætlun síðustu rútu

 

 
Borði